Á kafi
Aldursbil :
Drekaskátar, Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Heimurinn og umhverfið, Náttúran

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Á kafi“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Þekkja vötn í þínu nágrenni og hvaða lífverur er helst að finna í þeim.
• Heimsækja eitthvað vatnasvæði í þínu nágrenni og kanna hvað sé að finna í því vatni.
• Rannsaka og þekkja alla þrjá fasa vatns (ís, vatn, gas)
• Hafa grunnþekkingu á hringrás vatns.
Lýsing:
Með því að vinna að færnimerkinu Á kafi munt þú læra um vistkerfi vatna og hvernig þau virka. Þú rannsakar líf í vatni og allt sem má finna í því, þar á meðal muntu kanna plönturnar og d!rin sem lifa í vatninu og kynnast þeim skilyrðum sem þarf til að líf þrífist í vatni.








